Hleð Viðburðir

Georg Douglas opnar málverkasýningu í Hannesarholti fimmtudaginn 1. mars kl.16, sem nefnist ,,Gjúgg í blóm“ – ,,Peekaboo“. Georg er fæddur á Írlandi 1945 en varð íslenskur ríkisborgari 1975. Hann er með doktorspróf í jarðvísindum og vann við kennslu í 36 ár þar til hann fór á eftirlaun 2007. Hann hefur sótt nám í myndlist í Reykjavík og Kópavogi og hlotið viðurkenningar fyrir verk sín. Áhrif vísindanna má glögglega sjá í verkum hans, sjálfur lýsir hann sýningunni á þennan hátt:

„Litur blómanna er oft skær og áberandi en ekki er síður eftirtektarvert heildarumhverfi eða heimur blómanna. Undirgróðurinn hefur oft sterk áhrif á það hvernig við upplifum blómin. Þetta gildir sérstaklega um íslensk villiblóm sem gægjast oft í gegnum þykka og forvitnilega flækju af mosa, fléttum og grösum. Heimur blómanna verður enn merkilegri og furðulegri þegar við skoðum hann í meiri nærmynd með hjálp smásjártækni og sameindalíkana af prótínum og vefjum. Þá opnast nýjar og stærri víddir sem eru ekki síður fallegar en blómkrónur. Málverk mín sameina alla þessa þætti og í þeim er hlutföllum víxlað eða breytt til þess að mynda abstrakt heild, þar sem blómin sjálf eru stundum áberandi en stundum fá þau rétt að kíkja í gegnum flækjuna af þáttunum sem þau eru gerð úr eða vaxa í.“